Er til aðferð við að velja remedíur til sjálfshjálpar í bráðatilfellum?
Já, en hafa ber í huga að ástandið breytist gjarnan frá degi til dags í bráðatilfellum. Við val á remedíu er því mikilvægt að einbeita sér fyrst og fremst að því sem hrjáir viðkomandi þá stundina.
Einnig er mikilvægt að taka eftir því sem hefur áhrif á einkennin til hins betra eða til hins verra. Viðtal hjá hómópata er yfirleitt mjög ítarlegt og krefst töluverðs tíma þar sem víða er komið við. Í bráðatilfellum er þó hægt að vera mjög nákvæmur í vali á remedíum ef athyglinni er fyrst og fremst beint að kvillanum sjálfum og því hverning hann birtist hverju sinni.
Til dæmis getur kvef byrjað mjög skyndilega með hita og eymsli í hálsi. Einkennin kunna svo að taka á sig aðra mynd á næstu dögum og þó ástandið sé enn kvef þá kalla breytt einkenni á nýjar remedíur.
Ráðlagður skammtur
Þegar taka á remedíu skal hafa í huga að hvert tilfelli er einstakt þannig að skammturinn þarf hverju sinni að vera í samræmi við tiltekin einkenni til að geta létt á þeim. Nákvæmir skammtar ráðast þó meira af almennri skynsemi en einhverrar ófrávíkjanlegri reglu. Það er mikilvægt að einbeita sér að þeim einkennum sem eru mest áberandi og miklu máli skiptir að taka vel eftir því sem hefur áhrif á einkennin til hins betra eða verra. Stöðva skal inntöku þegar einkennum tekur að létta. Taka má auka skammta ef þurfa þykir. Hvorki skal borða né drekka samtímis eða nærri inntöku remedía til að virkni þeirra verði sem mest og best. Til viðmiðunar má hafa eftirfarandi skammta.
Bráðatilfelli:
1 tafla á 15 minúta fresti ef um mjög áköf einkenni er að ræða, annars á 2ja klukkustunda fresti allt að 6 skömmtum ef einkennin eru minni. Ávalt skal hætta inntöku þegar einkennum tekur að létta.
Einkenni sem eru stöðugri eða ekki eins bráð:
1 tafla 3 sinnum á dag og hætta inntöku þegar einkennum léttir.
Ýtarlegri upplýsingar um remedíuval í bráðatilfellum.
Remedíur eru til sölu á eftirtöldum stöðum:
• Skipholts Apótek, Skipholti 50b, 105 Reykjavík
• Maður lifandi, heilsuverslun, Borgartúni 24, 105 Reykjavík
• Yggdrasill, heilsuverslun, Skólavörðustíg 16, 101 Reykjavík
• Heilsuhornið, Glerártorgi, Akureyri