Fjórði hópur íslenskra hómópata útskrifast
útskrifaðir hómópatar á Íslandi orðnir 50 talsinsfrumvarp sem skilgreinir lagalega stöðu hómópata lögfest í vor?

Efri röð, frá vinstri: Sunna Borg, Svana Lára Ingvaldsdóttir, Aðalheiður Hjelm, Anna Birna Ragnarsdóttir.
Neðri röð, frá vinstri: Hallfríður María Pálsdóttir, Þuríður Hermannsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Martin Kennelly aðstoðarskólastjóri CPH, Christopher Hammond skólastjóri CPH, Aðalheiður Jóhanna Ólafsdóttir, Birna Björnsdóttir, Soffía Lára Karlsdóttir, Svana Víkingsdóttir.
Fjórði hópur íslenskra hómópata útskrifaðist frá The College of Practical Homoeopathy laugardaginn 12. febrúar 2005. Athöfnin fór fram í Íslensku óperunni. Með hópnum sem útskrifaðist eru útskrifaðir hómópatar á Íslandi orðnir 50 talsins. Þeim fer jafnt og þétt fjölgandi því um 40 manns til viðbótar eru nú við nám í hómópatíu hér á landi.
Námið tekur að jafnaði þrjú ár en þeir sem lagt hafa stund á hómópatanám hérlendis hafa gert það í hlutanámi og lokið því á fjórum árum.
Þegar fyrsti hópurinn útskrifaðist árið 1998 var staða óhefðbundinna meðferðaraðila mjög óljós þar sem þeirra var einungis getið í skottulækningalögum. Nú liggur hins vegar fyrir Alþingi frumvarp um græðara þar sem skilgreind er lagaleg staða þeirra. Hópurinn sem útskrifast á laugardaginn verður því væntanlega fyrsti útskriftarhópur hómópata hér á landi sem tekur til starfa með skilgreinda lagalega stöðu strax að námi loknu.
Í frumvarpi heilbrigðisráðherra um græðara, sem nær til allra þeirra sem hingað til hafa verið skilgreindir sem óhefðbundnir meðferðaraðilar, er gert ráð fyrir frjálsu skráningarkerfi. Þau skilyrði verða sett fyrir skráningu að meðferðaraðili hafi lokið námi frá viðurkenndum skóla, sé í fagfélagi og hafi gildar tryggingar. Jafnframt verður þeim sem skrá sig auðvelduð starfsemin, m.a. með niðurfellingu virðisaukaskatts af meðferð/meðhöndlun. Því er ljóst að ávinningur af slíkri skráningu verður mikill, bæði fyrir þá sem veita meðferð sem og viðskiptavini.