[Til baka]

Meltingin og Bowel nosodes

 
Ég man fyrir rúmum 20 árum þegar ég var að feta mín fyrstu spor í óhefðbundna  geiranum, að þáverandi kennarinn minn Örn Jónsson (nuddari með meiru) lagði óhemju mikla áherslu á allt sem tengdist meltingunni.  Við lærðum mest í Kínveskri heimspeki og um orkubrautirnar og elimentin 5.  Ef litið er t.d. á elimentin 5: eldur (hjarta og smáþarmar), jörð (milta, magi), járn (lungu og ristill), vatn (nýru og blaðra), tré (lifur og gall) sérst að í hverju elimenti er allavega 1 líffæri sem tengist meltingunni.  Ég skildi ekki þá hvaða mikli áhugi þetta var á meltingarfærunum en í dag er ég orðin mikil áhugamanneskja um sama efni og gott betur.  Nú eru um 5 ár frá því ég útskrifaðist sem hómópati og hefur áhugi minn á þessu efni aukist jafnt og þétt og er ég orðin ansi sannfærð um þá staðhæfingu að mestmegnis af okkar kvillum í dag megi rekja til truflunar á meltingu.  
 
Ekki dró úr sannfæringu minni þegar ég fyrir rúmum 2 árum fékk mér SCIO vél og þá fyrst sá ég enn skýrar að nánast allir sem komu í meðferð til mín voru með þarmaflóruna í ójafnvægi (Dysbiosis).  Algengast er að ofvöxtur sé á ýmsum sveppaafbrigðum og er Candida albilicans þar algengastur, það sem kom samt mest á óvart er hve alls kyns sníkjudýr eru algengt vandamál, sem valda miklu ójafnvægi og óþægindum.  Hægt er að tengja þetta ójafnvægi þarmaflóru við fjölmarga af algengum kvillum sem oft eru kallaðir menningasjúkdómar og hafa verið í miklum vexti undanfarna áratugi. 
 
Mjög margt hefur áhrif á jafnvægi þarmaflórunnar. Samspil margra þátta þurfa að vera í lagi þannig að viðkvæm flóran trufli okkur ekki.  Því miður hjá flestum börnum, er á fyrsta æviárinu lagður grunnur að ójafnvægi þarmaflórunnar með bólusetningum og fúkkalyfjanotkun.  Síðan er ójafnvæginu haldið við með fæðu sem viðheldur ástandinu eins og of mikilli neyslu á sykri, hvítu hveiti og unnum matvælum.  Oft er ástandið orðið slæmt á þessum fyrstu árum barnsins og meiri lyf eins og sterar og geðlyf komin inn í myndina. 
 
Mikilvægur þáttur í því að viðhalda þarmaflórunni réttri er að hafa sýrustig líkamans rétt.  Ef við höfum Ph gildið rétt eiga allir sveppir, sníkjudýr, bakteríur, vírusar og krabbamein erfiðara uppdráttar og ná sér síður á það stig að það trufli okkur.  Það eru líka fleiri atriði sem þarf að hafa í huga til að hafa Ph gildið rétt.  Þar komum við aftur að fæðunni okkar sem er eins og við vitum orðin mun næringaminni og meira unnin en áður. 
 
Amalgamfyllingar í tönnum viðhalda líka röngu Ph gildi, rafsegulsmengun, lyf og öll örvandi efni eins og kaffi, tóbak, áfengi og gosdrykkir.  Ekki má gleyma að minnast á streitu og álag, en það er oft vanmetið hversu mikið það hefur með líðan okkar að gera.  Við mikið álag fer Ph gildið upp hjá okkur og myndast þá betri skilyrði fyrir veikindi.  Það er líka þekkt að eftir áföll eða erfiða tíma hjá okkur, að við verðum þá oftar veik.  Oftast er þó sambland af þessum atriðum sem á undan eru talin sem veikja okkur.
 
Til að byrja með eru einkennin sem líkaminn sýnir okkur frekar væg eins og t.d. truflanir á hægðum, exem, eyrnabólgur, höfuðverkir og sveppasýkingar, en ef ekkert er viðhafst til að snúa við þessari þróun í þarmaflórunni, fara að koma fram alvarlegri einkenni en þá er ástandið í þörmum komið á það stig að talað er um leka þarma (leaky gut syndrome).  Þá er farið að bera á alvarlegri einkennum eins og ýmsum sjálfsónæmissjúkdómum.  Þegar svona er komið er upptaka á næringu orðin léleg þar sem smáþarmarnir eru í svo röngu ástandi.  Þó svo einstaklingurinn fari að borða betri mat og taka vítamín skilar það sér illa.  Í þessu ferli er farið að bera á ýmis konar óþoli og þreytu hjá einstaklingnum.  Þess vegna er engan veginn nóg að gefa fólki langa lista um hvað ekki eigi að borða heldur þarf að byrja á að byggja upp þarmaflóruna. 
 
Sorglegt er til þess að vita hvað þessu atriði er sýndur lítill áhugi t.d. hjá geðheilbrigðisstéttum, því í smáþörmunum fer fram mjög mikilvæg framleiðsla og upptaka á t.d. B vítamínum (sem næra t.d. taugakerfið) og seritonin hormóninu (gleðihormónið).
 
Mikið hefur verið skrifað um þetta efni og sem betur fer er almenningur farinn að verða meðvitaðri um mikilvægi þessa.  Má benda á höfunda eins og Huldu Clark, Robert Young og Natasha Canpell-McBride sem öll hafa gefið út fjölda bóka tengdum þessu efni. 
 
Þess vegna var það eins og himnasending fyrir mig að fá fyrirlestur um mitt aðaláhugamál hjá Myriam Shivadikar sem hefur af mikill ástríðu kafað djúpt í mikilvægi meltingarinnar.  Það er fjölmargt hægt að gera til að vinna þetta ástand þarmaflórunnar til baka.  Hægt er að nota jurtir, bætiefni, breyta mataræði, meðhöndla með SCIO og nota remedíur til að laga ástandið.  Þar koma Bowel nosodes sterk inn. 
Bowel nosodes eru remedíur sem eru unnar úr heilbrigðum meltingavef og vinna mun dýpra en aðrar remedíur.  Talið er að þær séu einu remedíurnar sem ná að breyta efnasamsetningu í þörmunum til frambúðar. Talið er að það taki minnst 3 mánuði að snúa þarmaflórunni við og oft lengur ef ástandið er orðið mjög krónískt.  Talað er aðallega um 7 Bowel nosodes og er Gaertner hvað mest notað og stundum talað um það sem Bowel nosodes 21. aldarinnar.
 
Ég get hiklaust mælt með því að nota Bowel nosodes í meðhöndlun við nánast hverju sem er og hef ég mjög góða reynslu af þeim.
T.d. þegar skjólstæðingur sýnir lítil viðbrögð við meðhöndlun, er oft gott að gefa Bowel nosodes og er þá eins og allt gangi betur.  Sérstaklega hef ég séð þetta hjá börnum sem eru búin að vera á hverjum fúkkalyfjakúrnum á fætur öðrum, þá er eins og remedíurnar nái ekki almennilega í gegn.  Þá hef ég frábæra reynslu af að nota Gaertner 200c 1 sinni á dag í 7-10 daga áður er ég gef „indicaded remedy“.
Því miður held ég að þessi remedíuhópur gleymist of oft vegna þess að lítið, ef nokkuð er  bent á hann í Murphy´s Repertory sem við flest notumst við.
 
Hér á eftir er stiklað á aðalatriðum Bowel nosodana 7.
Gaertner
Hefur með meltingu og upptöku næringar að gera.
Miasmi: Syphilinum  og Tuberculinum.
Eftir SÝKLALYFJANOTKUN og BÓLUSETNINGAR.
Þegar börn eru að byrja að neyta fyrstu fæðu og gubba mikið.
Sækir í sætindi, hveiti, ost og egg.
Þolir illa fitu (gubbar/óglatt/niðurgang) og kulda.
Ofurviðkvæmni, óróleiki, taugaveiklun, myrkfælni og martraðir.
Líffæri: Lungu, melting.
Tunga: Sprungur á tungu.
Helstu Gaertner rem. eru: PHOS, SIL, Carc, Merc.viv, Fluoine, Calc flupr, Calc phos, Calc sil, puls, Nat phos, Syph.

Morgan
Miasmi: Psora.
Allt of HÆGT / STÍFLUR.
HÚÐVANDAMÁL (kláði << hita) oft líkt sulph.
Krónísk vandamál.
Þunglyndi og kvíði.
Asmi og lungnavandamál.
Gigt.
Oft tengd vandamálum í sambandi við föður.
Sækir í sætindi, fitu, smjör og þungan mat.
Hægra megin.
Verri á nóttunni.
Líffæri:  Lifur og gall (safnar fitu um sig miðan).
Tunga:  þykk, hvít skán, bólgin, sár.
Helstu Morgan rem. eru: SULPH, Calc carb, Calc sulph, Med, Tub, Graph, Psor, Sep, Petr, Alum.
 
Morgan Gaertner
Hefur með meltingu, taugakerfi, öndunarfæri og húð að gera.
Miasmi: Psora.
Hraðari og meira akút en Morgan.
Líkist oft Lyco. í útliti.
Uppþemba og bjúgsöfnun.
Sækir í sætindi, salt og sterkan mat.
Hægra megin.
Verri kl. 16-20.
Skapstór og pirraður.
PSORIASIS.
Líffæri: Lifur og nýru.  (perulegan vöxt).
Tunga: skítug tunga, mikið munnvatn og gómur bólgin.
Helstu Morgan gaertner rem. eru: LYCO, Chelod, Hepar sulph, Lach, Tarax, Merc sulph, Hell nig.
 
Proteus
Hefur með hugann, ósjálfráða- og úttaugakerfið að gera. Þrífst á adrenalíni.
Líkist Nat mur. 
Ástíðufull orka. Allt mjög snöggt.
Langvarandi stress, ótti og reiðiköst.
Vill vera einn.
Grannur, aldrei svangur.
Oft tengd vandamálum í sambandi við móður.
Vinstra megin.
Hjartavandamál/háþrýstingur.
Svitnar mikið.
Krampar/flogaveiki.
Bjúgsöfnun.
B12 skortur.
Líffæri: Nýru.
Tunga: skarð í munnvikum, sár í munni.
Helstu Proteus rem. eru: NAT MUR, allar Mur rem, Apis, Ign, Bry.
 
Sycotic Co. 
Hefur með slímmyndun og meltingu að gera.
Miasmi:  Sycodic.
Gul/grænn gröftur.
Sínusabólgur.
Fölur og þvalur.
Bjúgsækinn og mikill um sig.
Heilahimnur og liðhimnur.
N.B.W.S. BÓLUSETNING.
Fæðuóþol.  Candida.
Vill ekki morgunmat.
Sækir í sætindi, smjör, salt og fitu.
Verri á nóttunni.
Líffæri: Þvag- og kynfæri.
Tunga: Hvít þykk skán, sár í munni.
Helstu Sycotic Co. rem. eru: THUJA, Arg nit, Puls, Ant tart, Nat sulph, Rhus tox.
 
Dysenerey comp. 
Hefur með taugakerfið að gera.
Líkist Proteus, en viðkvæmari, með meiri kvíða og stress en heldur því öllu inni.
Líffæri:  Hjarta.
Helstu Dysenerey comp. rem. eru: Ars, Arg nit, Gels, Acon, China.
 
Bacillus no.7 
Hefur með vöðva og bein að gera.
Andleg og líkamleg örmögnun.
Helstu Bacillus no.7  rem. eru:  Iodum, Kali Carb.
 
Rósa Bjarnadóttir
Hómópati (LCPH).