Það er mygla á Íslandi eins og annarsstaðar í heiminum
Mygla er nauðsynleg til niðurbrots og umbreytingar í náttúrunni, en þegar að mygla fer yfir ákveðin mörk innanhús þá erum við í hættu. Myglufrjókornin eru smá, það smá að við sjáum þau ekki með berum augum heldur öndum þeim að okkur, þeir sem þola verst myglugró eru börn sem eru mun nær gólfletinum en við, en mygla sest til eins og ryk á yfirborði hluta og gólfs. Gamalt fólk og rúmliggjandi fólk sem er mikið inni við og er með viðkvæmt ónæmiskerfi er viðkvæmast fyrir myglugróm [1].
Það er auðvitað mygla á Íslandi eins og í öllum heiminum, Það eru um það bil 2000 tegundir af mygluflokkum þekktar en aðeins 18 af þeim taldar hættulegar fólki þær eru
Penicillium Notatum, Cladosporium Herbarum, Aspergillus Fumigatus, Alternaria Tenius, Helminthosporium spp, Fusarium Moniliforme, Candida Albicans, Mucor Racemosus, Aureosbidium Pullulans, Stachybotrys, Chartarum, Aureobasidium, Acremonium,Chaetomium, Ulocladium,Torula, Mucor, Eppicoccum og Rhizopus.
Flestar þessar tegundir eru tegundir sem einungis eiga að vera utan hús en myndast inni við kjör aðstæður húsum með raka stig sem að er um og yfir 50- 60%. Íslenska heilbrigðis eftirlitið mælir bara loftraka, sem gagnast oft ekki þegar þú þarft að vita raka innihald í veggjum,gólfi eða lofti. Mygla er oft í gömlum illa viðhöldnum húsum og uppgerðum húsum sem að hafa ekki verið hreinsuð nægilega vel, Já og inni veggjum jafnvel í nýju húsnæði sem hefur eki fengið að þorna nógu lengi í byggingarferlinu. Mygla getur falist á ótrúlegum stöðum, inni í loftkerfi, milli veggja og undir dúk. það er nauðsynlegt að þrífa húsnæði mjög vel já jafnvel rífa niður veggi. því sé myglan á annað borð búinn að vera lengi í einhverju húsi á annað borð þýðir ekkert að reyna að mála yfir hana eins og sumir gera, því fólk veit oft ekki betur, mygla getur leitt fólk til dauða og oftast að vísu hægan dauðdaga, en í sumum tilvikum mjög hratt t.d. vöggudauði [2].
Allir geta orðið veikir af myglu sé nógu mikið af henni í loftinu það er að segja myglu- frókornum sem eru svo smá að við sjáum þau ekki. Eldra fólk, börn og fólk með viðkæmt ónæmiskerfi t.d. fólk með eyðni má alls ekki búa í húsi sem hefur skemmst illa af raka þrátt fyrir lagfæringar, ónæmiskerfið ræður ekki við öll gróin. Rannsóknir hjá Institute of Medicine(Stofnun út frá ríkisstjórn Bandaríkjanna, Landsstofnun vísinda) hafa sýnt fram á að fólk þarf bara að vera í nokkra klukkutíma á stað þar sem að gró eru í miklu magni til að gró setjist í slímhúð þeirra og fari að vaxa [3].
Þetta er ekki viðurkennt nægilega hér, það er jafnvel talið í sumum tilvikum að þurrka mygluna og loka fyrir hana eða mála sé nóg. Fólk sem er mikið heima eða inni við t.d. fólk sem er atvinnulaust eða í fæðingarorlofi finna sérstaklega vel fyrir þessu því að búa í húsum sem hefur verið málað yfir skemmdir og geta fengið allaveganna einkenni sem að tengast taugakerfi, ónæmiskerfi, öndunnarfæri og hjarta og æðakerfi (Einkenni Hús og Heilsa). Hér fyrir neðan er ég nokkrar lýsingar á þessum myglusveppum og áhrifum þeirra á heilsu.

Tegund myglu: Acremonium
Myglusveppurinn Acremonium getur við ákveðnar kringumstæður myndað eitur svokallað mycotoxins kallað trichothecenes.
Trichothecenes hafa truflandi áhrif Á Dna, Rna og prótein í mannslíkamanum, þessi áhrif hafa verið vel rannsökuð
með dýratilraunum, vegna möguleika þeirra til misnotkunnar í lífræðilegum hernaði í tilliti möguleika þeirra til að eyðileggja ónæmiskerfið,
innri lífæri, beinmerg og flr.
Í húsnæðum sem að Acremonium hefur verið greindur sem aðalmygluvöxtur,
hafa íbúar kvartað undan ógleði, uppgang og niðurgang [4].
Tegund myglu: Alternaria

Gró myglusveppsins Alternaria
Alternaria er flokkur af myglutegun sem vex innandyra, og veldur vandamálum sem kallast slæm loftgæði innanhús, þessi flokkur getur kveikt á einkennum heymæði sem að getur síðan leitt til asma.
Það er búið að flokka 44 tegundir sem að falla inn í þennan flokk en það gætu verið nokkrar hundruðir tegunda óflokkaðar.
Alternaria getur valdið margskonar heilsuvanda, meðal annars ofnæmum, grær í slímhúð (m.a. augum, og efri öndunnarveg). Margar þesar tegunda framleiða eitur svo kölluð mycotoxins. Hjá fólki þróast oft ofnæmi fyrir þessari tegund, en tegundin grær í slímhúð á fólki svo sem augum nefi lungum og síðan í nöglum og húð.
Tegund myglu: Aspergillus

Hér sést Aspagillus en hann er talinn önnur hættulegasta tegundin af myglu og er talin ein af þeim tegundum sem valda t.d. lifrarkrabbameini [5].
Aspergillus er flokkur myglu sem elskar sykur, margar tegundir úr þessum flokk gróa á brauði. Samt eru nokkrar tegundir úr þessum sem að gróa þar sem að lítið um næringu að hafa eins og á rökum veggjum. Aspagillus, er sérstaklega í því að mynda möl (myglu á fötum) Sumar þessa tegunda eru notaðar framleiðsluferli á mat, t.d. þá eru þær notaðr til að búa til hrísgrjónavín öðru nafni sake og vítamín eru stundum framleidd með myglusvepp í ferlinu og svo sojasósa [6] [7].
Astmi og mygla.
Nýjar kenningar eru að líta dagsins ljós með Astma sem eru þær að astmi sé eftil vill ekki bara gena tengdur heldur geti astmi ráðist á meðgöngu við langvarandi snertingu við myglu er móðirinn t.d. býr í húsnæði með rakaskemmdum [8].
Höfundur þessarar greinar þekkir myglusjúkdóma af eigin reynslu. Höfundur og fjölskylda hans hafa búið lengi í húsnæði með leyndum mygluskemmdum. Og er búin að ganga í gegnum nánast öll einkenni sem er lýst á heimasíðu fyrirtækisins Hús og Heilsa. Höfundur hefur nánast þurft að henda búslóð sinni og mun henda enn meiru af henni.
Einkenni á fólki geta verið margskonar þau eru einstaklingsbundin fer eftir fólki og tegund myglusvepps (frá vef Hús og Heilsa.is)
Fullorðnir
Einkenni (koma ekki öll fram) einstaklingsbundið.
- Þreyta, eða sífelldur höfuðverkur, stundum eins og mígreni.
- Ennisholubólgur, óþægindi og síendurteknar sýkingar.
- Hósti, þurrkur eða sviði í hálsi, eða sviði í lungum, hrotur.
- Tíð þvaglát, tíður niðurgangur eða aðrar meltingartruflanir.
- Sjóntruflanir, minnistruflanir, snertiskyn, doði og dofi í útlimum,ljósnæmni, rafmagnsviðkvæmni.
- Jafnvægistruflanir,
- Kvíði, þunglyndi, svefnvandamál.
- Áreiti í slímhúð—öndunarfæri og melting.
- Þroti, bjúgur
- Húðvandamál, þurrkur eða útbrot.
- Liðverkir, stingir, eða aðrir óútskýrðir verkir.
- Fæðuóþol, óþol gegn t.d. hnetum, brauði, msg, mjólkurvörum eða öðru.
- Þyngdaraukning eða þyngdartap án skýringa
- Einkenni eins og hjá börnum
Börn
Einstaklinsbundið hvaða einkenni koma fram og hversu sterkt
Ef þessi einkenni koma fram án eðlilegra skýringa
- Nefrennsli, hitasveiflur, eyrnaverkur, þrýstingur í eyrum (eins og hellur),
- Hósti, asthmi, lungnabólga, bronkítis
- Höfuðverkur eða einkenni frá ennisholum.
- Útbrot (líkt exem), þurr húð, roða í kinnar, rauða flekki í framan, þurra bletti eða sprungna húð, kláði.
- Sveppasýking á bleyjusvæði eða annars staðar
- Tíðar sýkingar, RS og bakteríur
- Verk í fætur eða liðamót—oft framan á sköflungi eða í hnjám
- Magakrampi, meltingartruflanir, niðurgangur eða harðlífi.
- Óróleiki, athyglisbrestur og einkenni ofvirkni, einbeitingarskortur, skapbrestir.
- Í slæmum tilfellum hægist á þroska og einkenni frá taugakerfi koma fram.
- Fæðuóþol t.d mjólkurvörur ofl. [9]
Einkennki sem að eru á vef Náttúrfræðistofnun Íslands.
Helstu einkenni voru: a) frá taugakerfi voru höfuðverkur, erfiðleikar við að muna, þvoglumælgi, svimi, máttleysi, truflanir á jafnvægi og sjóntruflanir; b) almenn vanlíðan svo sem mikil þreyta, uppþemba, útbrot eða afrifur, vanlíðan og vöðvakippir; c) í augum og öndunarfærum voru einkenni í nefi, óþægindi í afholum nefs (skútum), hósti, rennur úr augum, særindi í hálsi, geta aðeins talað lágt, þungt fyrir brjósti og mæði. Tvær aðrar nýlegar rannsóknir á fólki sem hafði verið í húsnæði með myglusveppum sýndu að sjúklingarnir höfðu skerta lungnastarfsemi og voru með mörg einkenni sem tengdust skaða á taugakerfi. Þessi einkenni eru örugglega erfið í greiningu sérstaklega ef sjúklingar vita ekki til þess að þeir séu í snertingu við myglusveppi. Ef vanlíðan hverfur eftir nokkurra daga dvöl annars staðar eykur það möguleikana á að um húsasótt af völdum sveppa gæti verið að ræða [9].
Einnig virðast sjúkdómar vera tengdir myglu. eins og t.d. Ms, Fibromyglia og brjóstakrabbamein [11] [12] [13].
Læknir sem heitir Shoemaker segir: Fibromyglya er eiginlega alltaf veikindi sem orsakast af þungamálmum sem eru lífræn taugaeitur. sjúkdómurinn er krónískur- og óhreint sogæðakerfi kveikjir á honum.
Ritchie Shoemaker, M.D [14].
Þegar myglueitrun er komin á hátt stig er sjúklingur með hormána truflannir, með einkenni frá lifur sem að lýsa sér í tilfinningalegu ójafnvægi, hjartsláttartruflannir t.d. vaknað upp á nóttunni með hjartsláttaróreglu, tíð þvaglát eða það sem læknar kalla blöðrubólgu og það virkar ekkert meðal við þessum einkennum búi súklingur í ónýtu húsnæði þá virka einginn meðul við veikindum hans, Hann getur t.d. fengið oft flensu kulda hita einkenni og útbrot sem klæjar í. Sjúklingur fær tímabundna lausn er hann fær remedíu en hann verður að vera taka remedíur oft, Þá er best að fá einhvern til að skoða húsið hans t.d. viðurkenndan aðila í þessum málum eins og Silgju Sigurjónsdóttur sem er lífræðingur og rekur fyrirtækið hús og heilsa.
Marinkovich er Læknir sem að viðurkennir einkenni myglu hann segir að ein leið til þess að sjá hvort að manneskja hafi orðið fyrir myglueitrun, sé að sjá hve há mótefnagildi eru á mælingu blóðs. Mótefnin eru mun hærri í fólki sem hefur orðið fyrir myglueitrun en í eðlilegu fólki [15].
Heimildalisti
- Vefslóð: http://www.ni.is/grodur/Flora/Sveppir/sveppatidindi/greinar//nr/458
- Vefslóð: http://www.24-7pressrelease.com/press-release/studies-link-crib-death-to-toxic-mold-in-mattresses-and-bedding-95471.php
- Vefslóð: http://www.saleensolutions.com/MOLD%20&%20Fungal%20Infections.htm
- Vefsíða: moldhelp.org
- Vefslóð: http://www.micotoxinas.com.br/boletim25.htm
- Vefslóð: allergy-details.com
- Vefslóð: http://www.aspergillus.org.uk/indexhome.htm?secure/historical_papers/index.php~main
- Tímarit: Newsweek, mars 14.2005.
- Vefsíða: Hús og Heilsa.is
- Vefslóð: http://www.ni.is/grodur/Flora/Sveppir/sveppatidindi/greinar//nr/458
- Vefslóð: http://www.truerenewal.com/Fungalbionics-Breast-Cancer-p/fbs-bc.htm
- Vefslóð: http://www.yourerdoc.com/black-mold-triggers-possible-ms-symptoms/
- Vefslóð: http://healthandenergy.com/diseases_linked_to_molds.htm
- Vefslóð: http://www.moldwarriors.com/preface.htm
- Vefslóð: https://www.schoolmoldhelp.org/index2.php?option=com_content&do_pdf=1&id=303