[Til baka]
Arnica Montana.
Það er ein remedía sem ég gæti ekki hugsað mér að vera án, en það er Arnica. Allir sem vita hvernig hún virkar og hafa notað hana, geta sagt kraftaverkasögu um hana. Hún er alltaf meðferðis hjá mér hvert sem ég fer, mjög góð í sjúkrakassann í bílnum.
Hér verður stiklað á nokkrum aðstæðum sem Arnica gæti komið að góðum notum.
Arnica er þekktust fyrir undraverðan bata eftir slys eða líkamlegt álag. Eftir slys verður líkaminn oft ofurviðkvæmur og aumur; hinn slasaði vill vera einsamall, segir gjarnan að “það er allt í lagi með mig”, sendir lækninn í burtu, við þessar aðstæður mun Arnica gagnast vel. Jafnvel högg eða aðskotahlutur í auga eða umhverfis augað bregst vel við Arnicu.
Í kringum skurðaðgerðir gagnast Arnica sérstaklega vel, bæði gegn sársauka og til að flýta fyrir gróanda. Sumir nota hana líka þegar þeir þurfa að fara til tannlæknis v/ tannskemmda eða tannúrdráttar.
Arnica kemur að góðum notum á meðgöngu, við og eftir fæðingu fyrir móður og barn. Líka ef móðir fær þvagteppu eftir fæðinguna.
Arnica hjálpar við gigtarverki þar sem aðaleinkennin eru sárir, stífir liðir, sem verða verri við kulda og raka. Þeir sem eru með gigt gætu farið til Hómópata hann hjálpar við að finna heildræn remedía sem getur hjálpað honum sjálfum og gigtar einkennunum sem hann er með.
Ertu lurkum lamin eftir garðvinnu helgarinnar? Íþóttaræfinguna eða fjallgönguna. Þá gæti Arnica komið að notum.
Fyrsta skiptið sem ég sá Arnicu virka áttaði ég mig á möguleikunum sem þessi remedía hefur upp á að bjóða. Dóttir mín sem var rétt ný orðin 1árs og ný byrjuð að taka fyrstu skrefin sín datt ill á horn. Meðan ég var að hugga hana sá ég smá skeinu í kjölfarið sá ég kúlu sem stækkaði og stækkaði. Ég var svo heppin að Arnica var á borðinu fyrir framan mig og af rælni ákvað ég að prufa að gefa henni 1 töflu af Arnicu af því ég var ný komin frá hómópatanum mínum og hún hafði sagt mér að nota hana ef slys bæri að höndum ákvað ég að nota hana í þessu tilfelli. Síðan leið tíminn ég og maðurinn minn keyrðum í rólegheitunum út úr bænum og stefndum á Selfoss. Þegar þangað var komið afklæddi ég barnið var engin kúla að sjá. Hvert fór hún!!!!!
Síðan lærði ég að nota hana þegar það á við, reyndar kom tímabil sem Arnica var drengnum mínum til ama því hann fékk aldrei glóðurauga eins og hinir strákarnir í leikskólanum!!!
Það eru margar remdíur sem geta komið að notum fyrir venjuleg heimili. Að læra undirstöðu nokkurra þeirra getur komið að góðum notum og róað móður hjartað og flýtt fyrir bata hjá þeim sem hana fær ef hún á við.
Ef einkennin eru mjög alvarleg eða þrálát þá er alltaf vissara að tala við lækni.
Hvar finnur þú hómópata? Auðveldasta leiðin er að fara á www.homopatar.is
