Greinar um hómópatíu og tengd málefni
Greinar eftir Bylgju Matthíasdóttur, hér er hægt að lesa 8 litlar greinar. Lesa meira.Sýklalyfjagjöf – Tökum ábyrgð á heilsu barna okkar
"Börn á Íslandi fá mun oftar sýklalyf en börn í nágrannalöndunum. Það er á ábyrgð okkar foreldra að taka upplýstar ákvarðanir um velferð barna okkar." Lesa meira.
Inflúenda A ((H1N1) Svína flensa) og hómópatía - Hómópatía getur hjálpað í flensufaröldrum
Vegna frétta sem nú tröllríða heiminum um svínaflensufaraldur (inflúensa A (H1N1) höfum við tekið saman upplýsingar, heillræði, og tillögur um hómópatískar remedíur sem reynst hafa vel í flensufaröldrum og flýta fyrir bata. Til að fá nánari upplýsingar er ráðlegt að hafa samband við hómópata. Lesa meira.
INFLUENZA PANDEMICS and long forgotten wonders of Homeopathy
Influenza pandemics have for centuries posed the greatest threat of a worldwide calamity caused by infectious disease. Over the past 300 years, ten influenza pandemics have occurred among humans. According to recent analysis, the 1918-19 pandemic killed 50 to 100 million people globally. Today, even a "mild" pandemic could kill many millions of people. Lesa meira.
Það er mygla á Íslandi eins og annarsstaðar í heiminum
Mygla er nauðsynleg til niðurbrots og umbreytingar í náttúrunni, en þegar að mygla fer yfir ákveðin mörk innanhús þá erum við í hættu. Lesa meira.
Meltingin og Bowel nosodes
Ég man fyrir rúmum 20 árum þegar ég var að feta mín fyrstu spor í óhefðbundna geiranum, að þáverandi kennarinn minn Örn Jónsson (nuddari með meiru) lagði óhemju mikla áherslu á allt sem tengdist meltingunni. Við lærðum mest í Kínveskri heimspeki og um orkubrautirnar og elimentin 5. Lesa meira.
Meltingarfærasjúkdómar og aðaleinkenni þeirra
Meltingarveginum, frá munni að endaþarmi, er skipt í efri og neðri helming. Truflun í efri helmingi leiðir til einkenna eins og verk, uppþembu, ropa, brjóstsviða, aukinnar munnvatnsmyndun, bragðskynsbreytinga, kyngingarerfiðleika, aukinnar og /eða minnkaðrar matarlystar, ógleði og uppkasta. Lesa meira.
Selen (selenium)
Frumefnið selen (Se) er eitt hinna lífsnauðsynlegu snefilsteinefna sem mannslíkaminn þarf á að halda. Selen finnst í litlu magni í öllum vefjum líkamans utan fituvefs. Líkaminn geymir u.þ.b. 20 mg selens. Um helmingur selenlíkamsforða karlmanna er í eistunum og þeim hlutum sáðrása sem næstir eru blöðruhálskirtlinum en mest er af því í hjarta, milta, nýrum og lifur. Lesa meira.
Samuel Hahnemann mjúkur umbótasinni
Friedrich Christian Samuel Hahnemann fæddist í Meissen við ána Elbu, þann 10. apríl 1755, ári fyrir sjö ára stríðið, og ólst upp í hinu stríðshrjáða Saxlandi. Faðir hans starfaði sem postulínsmálari. Hann vann fyrir fjölskyldunni í postulínsiðnaði héraðsins, þar sem hann hafði hvorki góð laun né var metinn að verðleikum. Lesa meira.
Kvikasilfurseitrun – vangreint heilsufarsvandamál hjá börnum !?
Sem móðir og áhugamanneskja um barnauppeldi og þroska hefur það ekki farið fram hjá mér hversu mikill fjöldi barna greinist með ýmis “hegðunar-, þroska- og námsvandamál” á seinni tímum. Það kveður jafnvel svo rammt að þessu að maður spyr sig stundum hvort faraldur sé í gangi og hvort þetta sé smitandi. Lesa meira.
Svefn og svefnvandamál
Góður og endurnærandi svefn er gríðarlega mikilvægur fyrir úthald og almennt góða líðan, á meðan einstaklingur hvílist og sefur, gefur hann líkamanum tækifæri til að endurnýja frumurnar og laga það sem úrskeiðis hefur farið. Lesa meira.
Flensa og hómópatía
Hér á eftir fylgja ráðleggingar mínar til fólks sem vill nota hómópatíu til að meðhöndla og fyrirbyggja flensu. Eins og alltaf þegar hómópatía er notuð þarf að skoða einstaklingsbundin einkenni, því þó sjúkdómur hafi ákveðið nafn þá getur birtingarmynd hans verið mismunandi hjá þeim sem veikjast. Lesa meira.
Hómópatísk og vistfræðileg sýn á smitsjúkdóma
Louis Pasteur viðurkenndi seint á ferlinum að líklega væru sýklar eftir alltsaman ekki orsök allra sjúkdóma heldur einkenni. Honum varð ljóst að sýklar ollu veikindum einkum þegar ónæmis- og varnarkerfi mannsins var of veikburða til að berjast gegn þeim. Lesa meira.
Breytingarskeiðið
Það má líta á breytingar frá tveimur sjónarhólum; annars vegar sem ógnun og hins vegar sem ögrun. Ef við verjumst breytingunum og afneitum þeim, er líklegt að við sóum mikilvægri orku og stöndum uppi andlega, líkamlega og tilfinningalega tæmd. Í kjölfar þess fylgja oft vandamál eins og kvíði, þunglyndi, lágt sjálfsmat, óöryggi, einbeitingarleysi, þverrandi kynhvöt og yfirþyrmandi tilfinning fyrir því að vera að brotna niður. Lesa meira.
Hómópatía – fortíð eða framtíðin?
Á dögunum mátti lesa fréttir af því að aðstandendur brezka læknatímaritsins Lancet teldu remedíur einskis nýtar og hómópatíuna þar með dottna upp fyrir. Þetta er auðvitað vindhögg eins og eftirfarandi grein Söru Eames ber með sér, en greinin birtist í Health and Homeopathy. Við hómópatar getum því heilshugar tekið okkur í munn orð Mark Twain þegar hann tilkynnti að frétt um andlát hans væri stórlega ýkt! Lesa meira.
Aspartam er umdeildasta fæðubótarefni sögunnar
Nýjustu vísbendingar, sem tengja það við hvítblæði og eitlaæxli, hafa aukið verulega mótmæli lækna, vísindamanna og neytendasamtaka sem staðhæfa að það hefði aldrei átt að hleypa þessu sætuefni á markað og það, að leyfa því að vera áfram í fæðukeðjunni, sé að drepa okkur hægt og bítandi. Lesa meira.
Ayurveda - Saga og lífsspeki
Ayurveda er elsta skjalfesta lækningakerfi heims. Það eru til um það u.þ.b. 4.000 ára gamlar skriflegar heimildir. Samkvæmt ayurvedískum hefðum er guðinn Dhanvantari persónugervingur guðsins Vishnu, eða frelsarans, og borðberi sannleikans eða guðlegrar vitundar. Lesa meira.
Ennis- og kinnholubólgur
Ennis- og kinnholur kallast gangar og holur sem eru í höfuðkúpu- og andlitsbeinum. Margir eru mjög gjarnir að fá sýkingar í þessi göng og þá oftar en ekki verða þessar sýkingar ansi þrálátar. Slím safnast fyrir í göngunum og mynda bólgur og sýkingar. Lesa meira.
Ungbarnamagakrampar
Um 10-15% ungabarna fá magakrampa á fyrstu mánuðum ævinnar. Enginn veit nákvæmlega hvað veldur þessum krömpum og eins er ekki vitað af hverju sum börn fá krampa, en önnur ekki. Óþægindi og grátur byrja þegar krampakenndur samdráttur myndast í þörmum ásamt útþenslu á sama tíma af völdum lofts. Þetta gerist þar sem meltingarfæri barnanna eru enn að þroskast. Lesa meira.
Hómópatía fyrir hunda og önnur gæludýr
Hér er ætlunin að kynna stuttlega hómópatíu, sem er til margra hluta nytsamleg og getur auðveldað fólki að fást við ýmis dagleg vandamál á einfaldan og náttúrulegan hátt. Það er ljóst að einungis gefst tóm til að tæpa á helstu og einföldustu atriðum sem duga gæludýraeigendum til heimilisnota. Erfiða sjúkdóma og hættulegt ástand er auðvitað skylt og rétt að láta til þess lærða fagmenn um. Lesa meira.
Gigt, hvað er hægt að gera?
Gigt er bólguástand í líkamanum og er ein af meginorsökum gigtar of mikil sýra í blóðinu, sem að veldur bólgum. Margar tegundir eru til af gigt, þær algengustu eru Liðagigt og Slitgigt. Eins má nefna Vefjagigt, Fjölvöðvagigt, Þvagsýrugigt, Psoriasisliðagigt og Rauða Úlfa. Gigt getur gert vart við sig mjög skyndilega eða hún getur stigmagnast yfir langan tíma. Lesa meira.
Blöðrubólga og hómópatía
Blöðrubólga er mjög algengur kvilli og fá konur hana mun oftar en karlar. Talið er að allt að 70% kvenna hafi einhvern tíma fundið fyrir blöðrubólgueinkennum. Sennilega má rekja þessa hærri tíðni meðal kvenna til þess, að þær hafa mun styttri þvagrás en karlar þó fleiri atriði geti komið til. Lesa meira.
Hómópatía og stofngerðir barna
Í starfi mínu sem hómópati hef ég oft fengið að verða vitni að því hversu fljótt börn bregðast við hómópatískri meðferð. Þau eru fljót að finna aftur sinn rétta tón ef þau eru minnt á hann og þau eru fljót að komast aftur upp á veginn ef þeim er beint í réttu áttina. Þetta er fyrst og fremst vegna þess að börn eru mjög orkumikil og því yfirleitt miklu fljótari að yfirvinna veikindi en við sem höfum kannski með aldrinum dreift orkunni í allar áttir. Lesa meira.
Hómópatía og jóga í fæðingu og eftir fæðingu
Í mínum huga eru fæðing og kraftaverk tvö orð sem eru næstum óaðskiljanleg. Ég hef tvisvar verið viðstödd fæðingu (fyrir utan þær tvær fæðingar þar sem ég var virkur þáttakandi) og séð ótal myndbönd af fæðingu. Það sem greip mig mest er hvernig hugarástand kvennanna virðist vera ráðandi þáttur í því hvernig fæðingunni miðar og hversu vel hún gengur fyrir sig. Lesa meira.
Líkami í jafnvægi læknar sig sjálfur
“Hómópatía vinnur vel með hefðbundnum lækningum,” segir Anna Birna Ragnarsdóttir formaður Organon, fagfélags hómópata. “Flestir Íslendingar eru með heimilislækni og að sjálfsögðu grípum við hómópatar alls ekki fram fyrir hendurnar á læknum eða vinnum gegn þeirra ráðleggingum. Hins vegar er talsvert um að fólk sem er í meðferð hjá læknum komi hingað og leiti eftir frekari hjálp. Lesa meira.
Súrt og basískt mataræði.
Efnajafnvægi líkamans er ákaflega mikilvægt. Súrir líkamsvefir eru ein af grundvallarorsökum margra sjúkdóma, sérstaklega gigtar. Lesa meira. Athugið að nauðsynlegt er að hafa uppsettan búnað til að geta lesið greinina, s.s. Acrobat Reader.
Mjög góð heimasíða þar sem þið getið fengið fleiri upplýsingar um súrt/basískt fæði, (síðan er á ensku).
Hvað er Ayurveda?
Það má lýsa ayurveda á marga vegu. Einn gæti sagt að það væri lækningkerfi komið frá guði til manna í hinu forna Indlandi. Annar gæri sagt... Lesa meira. Athugið að nauðsynlegt er að hafa uppsettan búnað til að geta lesið greinina, s.s. Acrobat Reader.
Aspartam sætuefnið: löglegt en vægast sagt varasamt.
Grein eftir Harald Magnússon, Osteópati B.Sc. (hons). Lesa meira. Athugið að nauðsynlegt er að hafa uppsettan búnað til að geta lesið greinina, s.s. Acrobat Reader.
Hérna getur þú fundið mjög góða grein um aspartam, (greinin er á ensku).
Heilsuþrepin 7
Í fyrri grein okkar “Hvað er góð heilsa – afhverju verðum við veik?” enduðum við á að spyrja “Hvað gerist ef að við hlustum ekki?” Hér veltum við þessari spurningu enn frekar fyrir okkur og leitumst við, á einfaldan hátt, að útskýra hvernig líkaminn getur brugðist við.
Mannslíkaminn er kraftaverk, hann kann að heila sig sjálfur og er fljótur að bregðast við, sérstaklega á meðan að við erum yngri að árum og líkamsstarfsemin í fullu fjöri. Lesa meira.
Hvað er góð heilsa – af hverju verðum við veik?
Í dag erum við mun upplýstari um heilsu okkar, líkama og líðan. Við gerum okkur grein fyrir því hversu dýrmæt, góð heilsa er. Öll viljum við njóta elliáranna á sem bestan hátt og geta tekið fullan þátt í lífi barna okkar og barnabarna. Ef við höfum farið lengi illa með heilsu okkar, getur verið erfitt að ná henni aftur til baka. Lesa meira.
Af hverju græðari? - Af hverju skráður græðari?
Græðarar hafa frá því að þeir byrjuðu að starfa hér á landi aldrei haft trygga lagalega stöðu. Lög sem notast hefur verið við fram að þessu eru í læknalögum, svokölluð skottulæknagrein þar sem fjallað er um að skottulækningar, hverskonar, séu bannaðar og þeir einir megi kalla sig lækni sem til þess hafi skilgreinda menntun, en ekki er skilgreint hvað skottulækningar eru. Lesa meira.
Alþýðulækningar í sögulegu ljósi.
Sjúkdómar, slys og ýmsir minni og meiri háttar kvillar hafa þjáð mannkynið frá örófi alda. Væntanlega er það hluti af því sem greinir tegundina homo frá öðrum dýrum að hún hefur leitast við að sigrast með einhverjum ráðum á þeim sjúkdómum sem hrella hana. Ekki er talið útilokað að frummenn hafi búið um beinbrot og næsta víst að á forsögulegum tíma hefur verið brugðist við sjúkdómum með einhverjum aðgerðum. Lesa meira.
Hómópatía
Hómópatía, stundum kölluð smáskammtalækningar, á það sameiginlegt með flestum óhefðbundnum meðferðarformum að líta svo á, að upphaf veikinda megi rekja til ójafnvægis í lífsorkunni. Lesa meira.
Hómópatía á meðgöngu og í fæðingu.
Fyrir ári síðan var ég viðstödd fæðingu systursonar míns – bæði sem hómópati og nuddari og sem vitni að þessu kraftaverki sem ég gleymi seint. Fæðingin fór rólega af stað og gekk frekar hægt enda strákurinn stór og fyrsta barn móður sinnar. Lesa meira.
Örlagarík eyrnabólga
Þegar dóttir mín var hálfs árs fékk hún í eyrun eins og svo mörg börn hér á landi. Hún fékk pensilínskammt í hverjum mánuði og í hvert sinn leið mér eins og ég væri að eitra fyrir henni en kunni engin önnur ráð. Ég reyndi ýmislegt og sumt virkaði ágætlega um tíma en á endanum fékk hún alltaf aftur í eyrun. Lesa meira.
Fyrsti græðarinn fær skráningu
Fyrsti græðarinn hefur fengið skráningu samkvæmt skráningarkerfi Bandalags íslenskra græðara sem viðurkennt er af heilbrigðisyfirvöldum. Handhafi fyrsta skráningaskírteinisins er Anna Birna Ragnarsdóttir hómópati og formaður Bandalags íslenskra græðara og Organon fagfélags hómópata. Lesa meira.
Arthur Gook, hómópati.
Arthur Charles Gook fæddist í London 11. júní 1883. Faðir hans var kennari. Arthur, sem var þriðji í röð fimm bræðra, hóf nám í menntaskóla. Þar naut hann sín verulega, og komu þá skarpar gáfur hans vel í ljós. Hlaut hann verðlaun til háskólanáms, en fékk ekki notið vegna andstöðu föður síns. Urðu það honum sár vonbrigði. Horfinn frá námi hóf hann störf hjá einu stærsta bókaútgáfufélagi í London. Lesa meira.
Fjórði hópur íslenskra hómópata útskrifast
Fjórði hópur íslenskra hómópata útskrifaðist frá The College of Practical Homoeopathy laugardaginn 12. febrúar 2005. Athöfnin fór fram í Íslensku óperunni. Með hópnum sem útskrifaðist eru útskrifaðir hómópatar á Íslandi orðnir 50 talsins. Þeim fer jafnt og þétt fjölgandi því um 40 manns til viðbótar eru nú við nám í hómópatíu hér á landi. Lesa meira.